Deilumál
- Details
- Published on Wednesday, 30 November 2011 00:22
Endalausar deilur geta brotist fram vegna misskilnings milli aðila. Ágreiningur getur verið vegna meintra galla vegna fasteignaviðskipta.
Einnig sökum ógerðra eða ófullnægjandi samninga milli verktaka og verkkaupa.
Nauðsynlegt er fyrir aðila að gera samning sín á milli áður en verk hefst. Á það við um skilgreiningu verksins og hvað skal unnið. Einnig ef nauðsyn er á breytingum eða viðbótum við verk. Þau skulu ekki unnin nema samningar um þau séu gerðir áður.
Bæði vegna þess að verktaki getur ekki unnið eitthvað sem ekki var beðið um og ætlast til að fá það greitt.
Ef ekki er samið fyrirfram um verkið má segja að verktaka sé rétt óútfyllt ávísun. Ekki er heimilt fyrir verktaka, raunar ekki heldur fyrir leigubílstjóra, að hafa samráð um ákveðið verð fyrir unna klst.
Vegna þessa er þeim heimilt að rukka nánast hvaða upphæð sem er fyrir unna klst nema samið sé um annað eða útsölutaxti auglýstur á annan hátt sé fyrir hendi.
Deilumálin kalla oft á dómkvadda matsmenn.
Dómkvaddur matsmaður er sá kallaður þegar dómari að beiðni lögmanns kallar til matsmann. Dómkvaddur yfirmatsmaður er sá kallaður þegar dómari að beiðni lögmanns kallar til matsmenn venjulega 2 til hnekkja eða staðfesta hinu fyrra.
Örvar Ingólfsson forsvarsmaður Eignaskiptingar ehf hefur bæði verið dómkvaddur matsmaður og yfirmatsmaður.

